Reykjaneshöfn - Njarðvík




 
 
 

Njarðvík er fisklöndunarhöfnin með eina bestu ísafgreiðslustöð við Faxaflóa á hafnarkantinum. Frysti- og kæligeymslur eru við hafnarbakkann. Skipasmíðastöð Njarðvíkur h.f. er með fjölþætta þjónustu og nýtt skipaskýli. Frábær aðstaða til viðgerða við Suðurgarð, sem er vel útbúinn rafmagnstengingum og stutt í S.N. og vélsmiðjur og aðra þjónustuaðila. Netaverkstæði Suðurnesja h.f. er í Njarðvík.  Flutningaþjónusta Gunnars sem er umboðsaðili Eimskipa, Samskipa og Atlantsskipa í vöruflutningum er staðsett við og í nágreni hafnarinnar.

Góð gámasvæði eru við Njarðvíkurhöfn, sem nýtast jafnt far- og fiskiskipum. Innsiglingin er greiðfær með 5,6 m dýpi, sem stendur til að dýpka síðar. Viðlegukantur fyrir skip allt að 130 m löng með djúpristu að 7,5 til 9 m ásamt fjölda annarra viðlegukanta við Norður- og Suðurgarð.


©2003 daCoda ehf. - Powered by ConMan 2.0