|
Keflavík er með eldri höfnum samlagsins en samt hin fullkomnasta. Nýlega endurbyggð með grjótvarnargarði og auðveld innsigling með gott dýpi.
Hreinlegt athafnasvæði með góðri tengingu við þjónustu bæjarins einsog verslanir, hótel og veitingastaði. Hafnarvigtin, saltsala Hafnarbakka hf. eru við höfnina. Keflavíkurhöfn er jafnframt tollhöfn.
Mörg skip nota Keflavíkurhöfn til farþega- og áhafnaskipta en aðeins 6 km eru á Keflavíkurflugvöll og því fáir kostir betri á landinu. Viðlegukantur fyrir skip allt að 165m með djúpristu að 7 til 13m ásamt fjölda annarra viðlegukanta fyrir smærri skip. |