Reykjaneshöfn - Helguvík




 
 
 

Helguvík er sú höfn sem skipulögð hefur verið með framtíðarsjónarmið í huga. Mikið athafnasvæði fyrir gámageymslur, vöru- og frystigeymslur. Iðnaðarlóðir hafa verið skipulagðar í nágrenninu til að uppfylla óskir út- og innflutningsaðila um kjöraðstöðu til uppbyggingar athafnasvæða. Framtíðarhöfn fyrir þau fyrirtæki sem munu nýta sér þá miklu orku og möguleika sem Hitaveita Suðurnesja býður upp á háhitasvæðinu á Reykjanesi.

Við Helgarvíkurhöfn hefur verið skapaður grunnur að iðnaðarsvæði, þar sem Helguvík bíður upp á kjör tengingar á sjó, landi og í lofti með Keflavíkurflugvöll í aðeins 4 km fjarlægð. Helguvík er einnig olíuhöfn Suðurnesja með olíubryggju og birgðastöð. Fiskimjölsverksmiðja SR-Mjöls h.f. og flokkunarstöð Helguvíkurmjöls h.f. eru í NV enda Helguvíkur. Aalborg Portlant sement er með birgðastöð í höfninni. Auðveld innsigling með mikið dýpi. Viðlegukanturinn í flutningsbryggju kanti Helguvík er 150m og er dýpið 10m fyrir skip allt að 200m.


©2003 daCoda ehf. - Powered by ConMan 2.0