Reykjaneshöfn - Hafnir




 
 
 

 

Hafnir Reykjaneshafnar eru fimm talsins (sjá nánar í tenglum hér að ofan):

Keflavíkurhöfn sem er fiski, skemmtiferðaskipa og skemmtibátahöfn búin löndunarkrana, en þar á sér stað uppbygging fjölbýlishúsa við bryggjuna sem bjóða upp á skemmtilega tengingu búsetu, mannlífs að leik og starfi og atvinnulífs. 

Njarðvíkurhöfn sem er góð fiskibátahöfn og flutningahöfn, en hún þjónaði sem aðal gáma og lausavöru flutningahöfn Varnarliðsins um árabil.  Mikið og gott laust atvinnusvæði er við höfnina sem býður upp á góða aðstöðu til uppbyggingar í fiskvinnslu og flutningaþjónustu.  Við Njarðvíkurhöfn er staðsett ísverksmiðja, sem þjónustar skip og fiskvinnslur.

Grófin sem er smábátahöfn með löndunarkrana.  Þar er einstaklega góð aðstaða fyrir smábáta og ýmiskonar sjósport. Í nágreni hafnarinnar í gróf eru m.a. Duushús þar sem m.a. er staðstett bátasafn Gríms Karlssonar.  Einnig er þar staðsett ferðamiðstöð SBK,  gistiheimili, veitingastaður, kertagerð og glerblástur sem og hin ýmsu þjónustufyrirtæki og verktakar.

Helguvík sem er olíu-flutningahöfn, fisklöndunarhöfn, lausavöru og gámaflutningahöfn.  Höfnin hentar mjög vel bæði til innflutnings og útflutnings.  Tenging hafnarinnar og nálægð við Keflavíkurflugvöll (4km) og sveitarfélög á suðurnesjum og höfuðborginni (45 mín akstur til Reykjavíkur). skapar einstaka breidd í þjónustutengingu hafnarinnar.  Mikil uppbygging á sér stað í iðnaðarsvæði Helguvíkur, m.a. er unnið að skipulagningu og uppbyggingu álvers Norðuráls á svæðinu, sem og margra þjónustu og iðnaðarfyrirtækja.  Hægt er að skoða lóðatilhögun og lausar lóðir á slóðinni www.reykjaneshofn.is  En þar eru enn lausar lóðir til iðnaðar- og þjónustuuppbygingar. 

Hafnir sem er bryggjukantur staðsettur í svæði hafna, en þar er ágætis aðstaða fyrri smábáta til skemmtisiglinga. 

Keflavíkurhöfn, Njarðvíkurhöfn og Helgúvíkurhöfn eru viðurkenndar farskipahafnir.


©2003 daCoda ehf. - Powered by ConMan 2.0