
 |
|
|
|
Fréttir og tilkynningar
------------------------------------------------------------------------------------------------
2 Maí 2012
Frétt frá Reykjaneshöfn.
Reykjaneshöfn hefur fengið greiðslu að fjárhæð 200 milljónir, samkvæmt samningum við Stakksbraut 9 ehf., sem hyggst reisa kísilver á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík.
------------------------------------------------------------------------------------------------
18 Apríl 2012
Tilkynning frá Reykjaneshöfn.
Reykjaneshöfn rifti í dag öllum samningum sínum við Íslenska Kísilfélagsið ehf., þar sem ekki hefur verið staðið við gerða samninga.
Jafnframt hefur Reykjaneshöfn undirritað kaupsamning um lóð, samning um lóðagjöld og hafnarsamning við Stakksbraut 9 ehf., sem hyggst reisa kísilver á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík.
Að mati Reykjaneshafnar eru nýju samningarnir ekki lakari en eldri samningar.
------------------------------------------------------------------------------------------------
12 Apríl 2012
Reykjaneshöfn - Ársreikningur 2011
Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2011 og fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur af hafnarstjórn 12. apríl 2012.
|
|
|
|
Fjárhags- |
|
|
2011 |
2010 |
áætlun 2011 |
|
|
|
|
|
|
Rekstrartekjur |
279.695.668 |
203.820.854 |
773.140.000 |
|
Rekstrargjöld |
219.577.839 |
153.695.335 |
259.118.000 |
|
Hagnaður fyrir afskriftir |
109.094.372 |
50.125.519 |
514.022.000 |
|
Rekstrarniðurstaða |
60.117.829 |
9.503.081 |
32.984.000 |
|
Tap ársins |
( 557.441.291) |
( 437.599.815) |
( 629.838.851) |
|
|
|
|
|
|
Eignir |
31.12. 2011 |
31.12. 2010 |
áætlun 2011 |
|
Fastafjármunir |
2.790.944.777 |
2.790.944.777 |
2.487.800.000 |
|
Veltufjármunir |
213.853.682 |
213.853.682 |
104.700.000 |
|
Eignir |
3.002.275.612 |
3.002.275.612 |
2.592.500.000 |
|
|
|
|
|
|
Eigið fé og skuldir |
31.12. 2011 |
31.12. 2010 |
áætlun 2011 |
|
|
|
|
|
|
Eigið fé |
( 2.674.376.876) |
( 2.674.376.876) |
( 2.992.700.000) |
|
|
|
|
|
|
Langtímaskuldir og skuldbindingar |
3.624.914.638 |
3.624.914.638 |
3.310.200.000 |
|
Skammtímaskuldir |
2.051.737.850 |
2.051.737.850 |
2.225.200.000 |
|
Skuldir |
5.676.652.488 |
5.676.652.488 |
5.585.200.000 |
|
Eigið fé og skuldir |
3.002.275.612 |
3.002.275.612 |
2.592.500.000 |
|
|
|
|
|
|
|
31.12. 2011 |
31.12. 2010 |
áætlun 2011 |
|
|
|
|
|
|
Handbært fé til rekstrar |
(143.496.757) |
(227.943.294) |
248.522.000 |
|
Veltufé til rekstrar |
(386.694.855) |
(302.868.378) |
514.022.000 |
Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga.
Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar.
Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2011 námu 279,7 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 170,6 m.kr. og þar af laun 59,5 m.kr. samkvæmt ársreikningi. Hagnaður fyrir afskriftir 109,1 m.kr. Afskriftir 49,0 m.kr. fjármunatekjur og -gjöld 617,5 mkr. en tap ársins 557,4 mkr.
Framkvæmdir voru óverulegar á árinu 2011, unnið við gatnagerð, lóðir og fjárfest fyrir 24,9 m.kr.
Framtíðarsýn:
Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 og en reiknað með úthlutun lóða á árinu 2012 m.a. hjá AGC ehf. með glýkólverksmiðju.
Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 370 þúsund tonna álver í áföngum. Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við hann í maí 2008. Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á árinu 2014.
Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.
Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2011 og skuldir sem nema um 6,2 milljörðum króna, mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum. Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4 milljarðar kr.
Eftir endurfjármögnun langtímalánanna á árinu 2011, þá er áætlað að rekstur hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar. Í þeim áætlunum sem unnið er með gagnvart lánveitendum er gert fyrir að byggingarframkvæmdir við kísilver fari af stað sumarið 2012 og rekstur hefjist á árinu 2014.
Ársreikningur 2011 (sækja hér)
------------------------------------------------------------------------------------------------
22 Mars 2012
Áætlun um birtingu ársreiknings 2011 fyrir Reykjaneshöfn.
Áætlað er að birta ársreikning 2011 fyrir Reyjaneshöfn í 15 viku.
------------------------------------------------------------------------------------------------
17 Mars 2012
Tilkynning frá Reykjaneshöfn.
Í tilefni af tilkynningu Landsvirkjunar til Íslenska Kísilfélagsins ehf. um að framlengja ekki raforkusölusamning við Íslenska Kísilfélagið ehf. vill Reykjaneshöfn koma eftirfarandi atriðum á framfæri: - Þrátt fyrir afdrif samnings Landsvirkjunar við Íslenska Kísilfélagið ehf. hefur það ekki áhrif á getu Reykjaneshafnar til þess að standa skil á greiðslu af skráðum skuldabréfaflokki sem er á gjalddaga þann 15. apríl n.k., né af lánssamningum sem eru efnislega samhljóða skuldabréfunum og með sama gjalddaga.
- Fjölmargir aðilar hafa að undanförnu sýnt áhuga á framkvæmdum vegna kísilvers í Helguvík og mun Reykjanesbær/Reykjaneshöfn kanna möguleika á slíku, komi til þess að ekki verði að framkvæmdum Íslenska Kísilfélagsins ehf. í Helguvík."
------------------------------------------------------------------------------------------------
30. Desember 2011
Tilkynning um afskráningu skuldabréfaflokka Reykjaneshafnar í Kauphöll.
Reykjaneshöfn hefur keypt og fengið afhent öll skuldabréf í flokkunum RNH 04 1, RNH 05 1 og RNH 08 1. Uppkaupin voru í samræmi við tillögu til lánadrottna og eigenda skuldabréfa sem tilkynnt var í Kauphöllinni þann 31. maí 2011. Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. var umsjónaraðili nýrrar útgáfu og uppkaupa ofangreindra skuldabréfa.
Reykjaneshöfn er nú orðin eigandi allra bréfanna og hefur óskað eftir því að þau verði afskráð í Kauphöllinni.
Jafnframt hafa ný skuldabréf í flokkunum RNH 27 0415 og RNH 16 1015 verið skráð í Kauphöllinni.
------------------------------------------------------------------------------------------------
01. Júní 2011
Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Þann 31. maí 2011 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir "kröfuhafar") um endurfjármögnun stofnunarinnar.
Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt tillöguna. Telst því tillagan samþykkt.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
31. maí 2011
Uppfærð tillaga til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga
sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn.
(Smella hér til að sækja uppfærða tillögu)
------------------------------------------------------------------------------------------------
21. maí 2011
Birting tillögu að matsáætlun fyrir Lífalkóhól og Glýkólverksmiðju Atlantic Green Chemicals við Helguvíkurhöfn.
LÍFALKÓHÓL OG GÝKÓLVERKSMIÐJA
Atlantic Green Chemicals
Við Helguvíkurhöfn
MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM
TILLAGA AÐ MATSÁÆTLUN
(smella hér til að sækja áætlun)
"AGC ehf.(Atlantic Green Chemicals) ásamt nokkrum erlendum samstarfsaðilum
áformar reisingu verksmiðju til framleiðslu umhverfisvænna og grænna efnavara úr
endurnýjanlegum hráefnum frá landbúnaði. Hráefnin sem notuð verða eiga uppruna
sinn í lífdísiliðnaði(glýseról) en hér verður þeim umbreytt í sérstöku
einkaleyfisvernduðu vinnsluferli. Helstu afurðir verksmiðjunnar verða m.a.
lífalkóhól(blanda nokkurra alkóhóla) en þó aðallega glýkól, frostlögur og skyld efni.
Hráefni verða flutt inn í tankskipum og helstu afurðir, sem eru fljótandi, að mestu
leyti einnig. Greinargerð þessi lýsir helstu þáttum og meginatriðum fyrirhugaðrar
framkvæmdar og rekstrar.
Framleiðsluaðferin sem notuð verður byggir á samtvinnun nokkurra aðskildra
framleiðslueininga, t.a.m vetnisframleiðslu, efnaumbreytingu í lokuðum
hvarfakútum, upphitun, uppgufun, eimingu, geymslu hrávöru og afurða í geymum
og fl.. Framkvæmdin telst því falla undir skilgreiningar í lið 7.i. í fyrsta viðauka
laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum(efnaverksmiðja sem framleiðir lífræn
hráefni(afurðir)).
Tillaga að matsáætlun lýsir framkvæmd við byggingu verksmiðju og skýrir að auki
vinnslu- og framleiðsluferli áformaðs verkefnis. Áformað er að fyrsti áfangi
verksmiðjunnar skili um 100 tonnum af afurðum á dag(30.000 tonnum á ári) en eftir
stækkun í endanlega stærð, í tveimur viðbótaráföngum, um fjórum sinnum meira
magni eða um 400 tonnum á dag(120.000 á ári). Áformuð staðsetning
verksmiðjunnar er við Helguvíkurhöfn, á deiliskipulögðu iðnaðarsvæði og
lóð sem Reykjanesbær hefur veitt vilyrði fyrir vegna fyrirhugaðrar starfsemi.
Gert er ráð fyrir að nýta afgangsvarma frá Íslenska kísilfélaginu hf (ISC) til þess að
knýja ýmis varmafræðileg verkefni eins og upphitun, uppgufun og eimingu. Þessi
varmi er aukaafurð og kemur því í stað brennslu jarðefnaeldsneytis (olíu, gass) sem
annars þyrfti að eiga sér stað ef verksmiðjan yrði staðsett erlendis. Auk gufunnar
notar verksmiðjan vetni sem meiningin er að framleiða með rafgreiningu.
Samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum fellur
framleiðslan undir 1. viðauka laganna, lið 7 i.(efnaverksmiðja sem framleiðir lífræn
hráefni(afurðir).
Framkvæmdaraðili verkefnisins er AGC ehf. Um verður að ræða byggingu
starfsmannaaðstöðu, iðnaðarskála, afurðageyma, stálvirkja og turna, á þegar
skipulögðu iðnaðarsvæði við Helguvík, Reykjanesbæ. Sveitarfélagið hefur unnið
deiliskipulag fyrir svæðið. Um er að ræða nýjan rekstur sem ekki hefur verið
starfræktur á Íslandi áður. Starfsemin felur hvorki í sér losun á koldíoxíði1 né á öðrum gróðurhúsalofttegundum."
(texti þessi er tekinn út inngangi greinagerðainnar).
------------------------------------------------------------------------------------------------
13. maí 2011
Reykjaneshöfn - Ársreikningur 2010
Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjaneshafnar fyrir árið 2010 og fréttatilkynning vegna hans, en ársreikningurinn var lagður fram og samþykktur af hafnarstjórn 12. maí 2011 og verður tekinn fyrir í bæjarstjórn 17. maí 2011.
|
|
|
|
Fjárhags- |
|
|
2010 |
2009 |
áætlun 2010 |
|
|
|
|
|
|
Rekstrartekjur |
203.820.854 |
363.926.035 |
291.900.000 |
|
Rekstrargjöld |
153.695.335 |
248.980.996 |
193.716.000 |
|
Hagnaður fyrir afskriftir |
50.125.519 |
114.945.039 |
98.184.000 |
|
Rekstrarniðurstaða |
9.503.081 |
74.001.456 |
32.984.000 |
|
Tap ársins |
( 437.599.815) |
( 502.800.808) |
( 629.838.851) |
|
|
|
|
|
|
Eignir |
31.12. 2010 |
31.12. 2009 |
áætlun 2010 |
|
Fastafjármunir |
2.790.944.777 |
2.257.061.157 |
1.942.700.000 |
|
Veltufjármunir |
213.853.682 |
213.853.682 |
148.142.628 |
|
Eignir |
3.002.275.612 |
2.470.914.839 |
2.090.842.628 |
|
|
|
|
|
|
Eigið fé og skuldir |
31.12. 2010 |
31.12. 2009 |
áætlun 2010 |
|
|
|
|
|
|
Eigið fé |
( 2.674.376.876) |
( 2.670.914.321) |
( 3.432.538.852) |
|
|
|
|
|
|
Langtímaskuldir og skuldbindingar |
3.624.914.638 |
3.154.411.329 |
4.773.338.596 |
|
Skammtímaskuldir |
2.051.737.850 |
1.987.417.831 |
750.042.884 |
|
Skuldir |
5.676.652.488 |
5.141.829.160 |
5.523.381.480 |
|
Eigið fé og skuldir |
3.002.275.612 |
2.470.914.839 |
2.090.842.628 |
|
|
|
|
|
|
|
31.12. 2010 |
31.12. 2009 |
áætlun 2010 |
|
|
|
|
|
|
Handbært fé til rekstrar |
(227.943.294) |
(110.902.644) |
(345.646.388) |
|
Veltufé til rekstrar |
(302.868.378) |
(160.456.193) |
13.442.628 |
Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga.
Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar.
Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2010 námu 203,8 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 153,7 m.kr. og þar af laun 55,9 m.kr. samkvæmt ársreikningi. Hagnaður fyrir afskriftir 50,1 m.kr. Afskriftir 40,6 m.kr. fjármunatekjur og -gjöld 447,1 mkr. en tap ársins 437,6 mkr.
Framkvæmdir voru óverulegar á árinu 2010, unnið við gatnagerð, lóðir og dýpkun og endurbætur á grjótvarnargarðinum í Helguvík og fjárfest fyrir 147,9 m.kr.
Framtíðarsýn:
Lóðaúthlutun í Helguvík hefur nánast stöðvast frá árinu 2008 og en reiknað með úthlutun lóða á árinu 2011. Undirritaðir voru samningar um lóð, verksamning varðandi undirbúning lóðar og hafnarsamning á milli Reykjaneshafnar og Íslenska kísilfélagsins ehf. þann 28. febrúar 2011. Íslenska kísilfélagið ehf. hyggst byggja kísilver á lóðinni Stakksbraut 9 við Helguvíkurhöfn í tveimur áföngum og byrja á 1. áfanga sumarið 2011. Nú þegar hafa undirbúningsframkvæmdir á lóð hafist með töku jarðvegssýna, þar sem boraðar voru kjarnasýnisholur til að kanna jarðlög þar sem hæstu byggingarnar munu standa. Fyrirhugað er að framkvæmdir á lóð hefjist í byrjun júní 2011. Ráðgert er að byggingartími kísilversins sé tvö ár og framleiðsla hefjist á síðari hluta ársins 2013.
Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 370 þúsund tonna álver í áföngum. Fyrsti áfangi yrði 90 þúsund tonna álver og hófust byggingarframkvæmdir við hann í maí 2008. Óvíst er hvenær framleiðsla hefist en vonast að það verði á árinu 2013.
Reykjaneshöfn lenti í vanskilum með afb. langtímalána í maí 2011 og í framhaldi af því var í október 2010 Centra fyrirtækjaráðgjöf ehf. fengin til ráðgjafar um endur-skipulagningu fjárhags Reykjaneshafnar. Samkomulag náðist við alla lánveitendur Reykjaneshafnar 1.12.2010 um að innheimta allra vanskila og afborgana langtímalána yrðu stöðvuð til 1.5.2011. Sá frestur var framlengdur til 1. júní 2011 og vonandi nær Reykjaneshöfn að semja við lánveitendur langtímalánanna fyrir þann tíma, enda er það ein af forsendum þess að rekstrarhæfi hafnarinnar sé tryggt næstu ár.
Góðar framtíðarhorfur Reykjaneshafnar.
Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykjaneshafnar árið 2010 og skuldir sem nema um 5,7 milljörðum króna, mun eignastaða Reykjaneshafnar styrkjast á næstu árum. Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4 milljarðar kr.
Ef áætlanir um endurfjármögnun langtímalánanna ganga eftir, þá er áætlað að rekstur hafnarinnar muni komast í jafnvægi á næstu árum með auknum tekjum vegna hafnargjalda, lóðargjalda, lóðarleigu og fasteignarskatta tekjurnar verði hærri en fjármagnskostnaðurinn og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar. Í þeim áætlunum sem unnið er með gagnvart lánveitendum er gert fyrir að byggingarframkvæmdir hjá Íslenska kísilfélagið ehf. fari af stað sumarið 2011 og rekstur hefjist á árinu 2013.
(Smella hér til að sækja ársreikinginn)
------------------------------------------------------------------------------------------------
18. apríl 2011
Tilkynning vegna tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga frá 8. apríl
Þann 8. apríl sl. setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem gefnir eru út af Reykjaneshöfn um endurfjármögnun hafnarinnar. Kröfuhafar hafa sett fram ákveðnar hugmyndir um breytingar á tillögunni sem Reykjaneshöfn vill taka til nánari skoðunar. Gert er ráð fyrir að setja fram uppfærða tillögu til kröfuhafa í næstu viku."
------------------------------------------------------------------------------------------------
8. apríl 2011
Reykjanesbær, 8. apríl 2011
Tillaga til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Á fundi þann 16. mars 2011 var lánveitendum og eigendum fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn kynntar hugmyndir Reykjaneshafnar um mögulegar leiðir til endurfjármögnunar á skuldum stofnunarinnar. Engar ákvarðanir voru teknar á fundinum, en óskað eftir viðbrögðum við þeim hugmyndum sem kynntar voru fyrir 5. apríl.
Í millitíðinni hefur Reykjaneshöfn að ósk þeirra þriggja lífeyrissjóða sem eru stærstu kröfuhafarnir að undanskildum Reykjanesbæ og Lánasjóði Sveitarfélaga, ráðið verðbréfafyrirtækið Arctica Finance hf. til að vera þessum lífeyrissjóðum til ráðgjafar, sem og öðrum kröfuhöfum sem þess óska. Eftir sem áður mun verðbréfafyrirtækið Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. vera ráðgjafi Reykjaneshafnar og hafa með höndum samskipti við kröfuhafa fyrir hennar hönd.
Í ljósi þeirra viðbragða sem Reykjaneshöfn hafa borist frá kröfuhöfum í kjölfar fundarins þann 16. mars s.l. vill stofnunin setja fram tillögu um útfærslu á endurfjármögnun sem felur í sér þá hugsun að "bíða og sjá", sbr. kynningu frá 16. mars. Tillagan er sú að kröfuhafar endurfjármagni núverandi skuldir hafnarinnar að hluta til með löngu jafngreiðslubréfi sem fái þjónustu strax, en að hluti af skuldunum verði settur á styttra bréf sem fái ekki þjónustu fyrr en eftir tvö ár. Reykjaneshöfn mun hafa burði til að standa við skilmála bréfanna ef þróunin á næstu árum verður á þann veg sem lýst er í sviðsmynd sem nefnd var "Grunnviðmið" í kynningu 16. mars, þ.e. að kísilver verði að veruleika með þeim áhrifum á atvinnuuppbyggingu á svæðinu sem vænst er að því fylgi. Ákvæði bréfanna tryggi hagsmuni kröfuhafa og aðkomu þeirra að málum ef þróun er neikvæð.
Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi fjármálagerningar verði keyptir til baka á bókfærðri stöðu þeirra og greitt fyrir með löngu bréfi á kröfu sem nemur 100 punktum á HFF 44 og styttra bréfi á kröfu sem nemur 380 punktum á HFF 34. Hlutföll milli bréfanna tveggja verður með þeim hætti að meðalkrafa nemur 235 punktum. Við verðlagninguna á þessum nýju bréfum var litið til þeirrar verðlagningar sem hefur tíðkast í skuldabréfaútgáfum hafnarinnar, en meðalálag við sölu á öllum verðtryggðum núverandi bréfum og lánum Reykjaneshafnar nemur 171 bp og hæsta verð sem höfnin hefur greitt fyrir verðtryggt lánsfé fram að þessu nemur 235 punktum umfram áhættulausa vexti. Bréfin verða með fulla ábyrgð sveitarfélagsins.
Tillagan er útfærð nánar í viðauka.
Óskað er eftir afstöðu lánveitenda og eiganda fjármálagerninga við þessari tillögu fyrir klukkan tólf á hádegi mánudaginn 18. apríl 2011. Allir lánveitendur og eigendur fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn, utan Lánasjóðs Sveitarfélaga, verða að samþykkja tillöguna ef hún á að ná fram að ganga.
Tilkynnt verður um afdrif tillögunnar eftir lokun markaða þann 18. apríl 2011.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
16. mars 2011
Kynning frá fundi fyrir lánadrottna og eigendur fjármálagerninga
Meðfylgjandi er kynning, sem verður flutt kl. 10:00 þann 16. mars 2011, fyrir lánadrottna og eigendur fjármálagerninga sem Reykjaneshöfn hefur gefið út. |
|
viðhengi (sækja viðhengi hér):
|
-------------------------------------------------------------------------------------------------
8. mars 2011
TILKYNNING FRÁ REYKJANESHÖFN
Kynningarfundur fyrir eigendur fjármálagerninga
Þann 22. desember 2010 samþykktu eigendur fjármálagerninga skilmálabreytingu sem veitti Reykjaneshöfn tækifæri til að vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu. Stofnunin hefur unnið að stefnumótun og útfærslu á forsendum fjárhagslegrar endurskipulagningar frá nóvember 2010 og hefur athyglin einkum beinst að aðgreiningu atvinnusvæðis við Helguvík frá annarri starfsemi Reykjaneshafnar. Tækifærið í slíkri aðgreiningu er þríþætt:
- Að laða nýtt fjármagn að atvinnuþróun í Helguvík
- Að gefa lánadrottnum óbeina tryggingu í landareignum Reykjaneshafnar
- Að losa Reykjanesbæ undan ábyrgð á hluta af skuldum Reykjaneshafnar
Ein útfærsla af slíkri aðgreiningu atvinnusvæðisins hefur verið útfærð ítarlega og hlotið nokkra kynningu, bæði meðal eigenda fjármálagerninga Reykjaneshafnar sem og til utanaðkomandi aðila.
Þann 17. febrúar s.l. voru undirritaðir fjárfestingarsamningar vegna byggingu kísilvers, ásamt samningum um orkukaup og aðstöðu í Helguvík. Samningar um aðstöðu í Helguvík eru þrír, þ.e. samningur um lóð undir kísilverið, verksamningur um framkvæmdir vegna hafnaraðstöðu sem þjóni kísilverinu og samningur um notkun á hafnaraðstöðu. Samkvæmt samningunum greiðir Íslenska kísilfélagið ehf. samtals 560 milljónir króna fyrir tæplega 11 hektara eignarlóð. Samningarnir voru undirritaðir með nokkrum fyrirvörum og hafa aðilar frest til 15. júní til þess að falla frá fyrirvörum sínum.
Eigendum fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn er boðið til kynningar á tillögum um fjárhagslega endurskipulagningu og nánari útlistun á efni samninga við Íslenska kísilfélagið miðvikudaginn 16. mars 2011, klukkan 10:00 á Hilton Reykjavík Nordica, ráðstefnusal G.
------------------------------------------------------------------------------------------------
23 desember 2010
Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Þann 10. desember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir "kröfuhafar") um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar.
Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt tillöguna. Telst því tillagan samþykkt.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
10 desember 2010
Reykjanesbæ, 10. desember 2010
Ný tillaga Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Í kjölfar fundar í dag leggur Reykjaneshöfn hér með fram nýja tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga. Tillagan tekur tillit til þeirra sjónarmiða sem lágu að baki því að einn eigenda fjármálagerninga hafnaði fyrri tillögu og bætir við ákvæði um upplýsingagjöf, en er að öðru leyti efnislega samhljóma fyrri tillögu. Tillagan er sem hér segir:
1. Enginn lánveitandi eða eigandi fjármálagernings fær greiðslur vaxta eða afborgana fyrr en 1. maí 2011, með þeirri undantekningu að eigandi víxla fær vaxtagreiðslu. Frestaðar greiðslur afborgana og vaxta bætast við höfuðstól og koma til greiðslu á venjulegum afborgunum hvers bréfs.
2. Yfirstandandi fjárfestingarverkefni verða stöðvuð og engin ný verkefni sett í gang, með þeirri undantekningu að Reykjaneshöfn er heimilt að ráðast í jarðvegsskipti á einstökum lóðum við sölu þeirra. Stöðvunin gildir fram til 1. maí 2011.
3. Ekki verður stofnað til nýrrar lántöku né veð veitt í eignum, með þeirri undantekningu að heimilt er að Reykjanesbær láni Reykjaneshöfn til greiðslu vaxta af víxlum sbr. 1. tölulið tillögu.
4. Allir kröfuhafar, nema eigandi víxla, fá rétt til gjaldfellingar krafna sinna ef skuld eða skuldbinding útgefanda við aðra umfram 5 milljónir króna er vanefnd og gjaldfelld af þeim sökum, þó með fyrirvara um að vanefndin stafi af réttlætanlegum mótmælum Reykjaneshafnar.
5. Allir lánveitendur og eigendur fjármálagerninga utan Lánasjóðs Sveitarfélaga verða að samþykkja tillöguna.
6. Reykjaneshöfn mun upplýsa lánveitendur og eigendur fjármálagerninga með formlegum hætti um stöðu og árangur af stefnumótunarvinnu eigi síðar en 8. mars 2011.
7. Frestur til að samþykkja tillögu er til og með 22. desember 2010.
Tilkynnt verður um afdrif tillögunnar þann 23. desember 2010.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
1 desember 2010
Reykjanesbæ, 1. desember 2010
Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Þann 3. nóvember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir "kröfuhafar") um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar. Einn kröfuhafi hefur lýst því að sér sé ómögulegt að samþykkja tillöguna sökum þeirra laga sem gilda um starfsemi viðkomandi kröfuhafa og var tillögunni í kjölfarið formlega breytt á þann veg að tekið var tillit til aðstæðna viðkomandi. Breyting á tillögu Reykjaneshafnar var tilkynnt formlega í kauphöll þann 25. nóvember 2010.
Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa átján samþykkt tillögu Reykjaneshafnar með þeirri breytingu sem var gerð á henni þann 25. nóvember s.l. Telst tillögunni því hafnað.
Í ljósi þessarar niðurstöðu býður stjórn Reykjaneshafnar kröfuhöfum til fundar föstudaginn 10. desember n.k. klukkan 10:00 í sal G á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu athugasemdum sem komið hafa fram við tillögu Reykjaneshafnar og óskað eftir umræðum um möguleg næstu skref.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
25 nóvember 2010
Tilkynning um breytingu á tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Reykjaneshöfn hefur borist orðsending frá Lánasjóði Sveitarfélaga (LS) um afstöðu sjóðsins til Tillögu hafnarinnar. Orðsendingin felur í sér að LS hafnar Tillögu Reykjaneshafnar og er svohljóðandi:
"Þar sem lög um LS heimila eingöngu lánveitingar til verkefna með almenna efnahagslega þýðingu er ekki séð að heimilt sé að lána, eða skuldbreyta vöxtum eins og hér er farið fram á. Því hefur stjórn hafnað þessari beiðni."
Í ljósi þessarar afstöðu LS hefur Reykjaneshöfn ákveðið að breyta Tillögunni á þann veg að hún verði að hljóta samþykki allra lánveitenda og eigenda fjármálagerninga nema LS. Engin önnur breyting er gerð á Tillögunni.
Öll lán Reykjaneshafna frá LS eru í skilum, en næsti gjalddagi er þann 5. febrúar. Samkvæmt ákvæðum Tillögunnar mun Reykjaneshöfn ekki inna af hendi neinar greiðslur á þessum gjalddaga og stendur það ákvæði óbreytt. Ef til gjaldfellingar LS kemur vegna gjalddaga 5. febrúar eiga aðrir kröfuhafar samkvæmt Tillögunni rétt til að gjaldfella sínar kröfur og stendur það ákvæði óbreytt.
Ef Tillagan með þessari breytingu fær samþykki allra kröfuhafa, mun Reykjaneshöfn eftir sem áður ljúka stefnumótunarvinnu og leita leiða til úrlausnar á skuldavanda sínum og halda lánveitendum og eigendum fjármálagerninga upplýstum um framgang þeirrar vinnu eðli máls samkvæmt.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
3 nóvember 2010 (2)
Tilkynning um breytingu á tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn
Í samráði við kröfuhafa hefur Reykjaneshöfn ákveðið að breyta áður tilkynntri tillögu sinni þannig að frestur kröfuhafa til að samþykkja hana er lengdur og verður til og með 30. nóvember 2010 (var til og með 17. nóvember 2010). Af þessu leiðir að Reykjaneshöfn mun tilkynna um afdrif tillögunnar þann 1. desember 2010 (var 18. nóvember 2010).
Þá er að ósk kröfuhafa bætt inn í tillöguna ákvæði þess efnis að allir kröfuhafar hafi rétt til gjaldfellingar krafna sinna þann 1. maí 2011 ef ekki tekst að koma fjármálum Reykjaneshafnar í viðundandi horf fyrir þann tíma.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
------------------------------------------------------------------------------------------------
3 nóvember 2010 (1)
Fundur haldinn með lánveitendum og eigendum verðbréfa Reykjaneshafnar þann 3. nóvember 2010, kl 10:00. á Hilton Reykjavík Nordica, D sal. Sjá viðhengi Fjármál.
------------------------------------------------------------------------------------------------
29 október 2010
TILKYNNING UM FUNDARBOÐ
Reykjaneshöfn boðar til upplýsingafundar þann 3. nóvember 2010 kl. 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica, samanber meðfylgjandi fundarboð.
Aðgangur er heimill lánveitendum Reykjaneshafnar og eigendum verðbréfa sem útgefin eru af Reykjaneshöfn.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson í síma 420 3222.
Til allra lánveitenda Reykjaneshafnar og eigenda
verðbréfa sem útgefin eru af Reykjaneshöfn
29. október 2010
Efni: Fundarboð
Boðað er til fundar með lánveitendum Reykjaneshafnar þann 3. nóvember 2010, klukkan 10:00 á Hilton Reykjavík Nordica, ráðstefnusal D. Tilgangur fundarins er að upplýsa lánveitendur um aðdraganda og orsakir þeirra greiðsluerfiðleika sem Reykjaneshöfn er í, fara yfir þá stöðu sem myndast hefur og væntingar til framtíðar miðað við óbreytta stefnu. Jafnframt mun Reykjaneshöfn leggja fyrir lánveitendur tillögu sem snýr að því að skapa svigrúm fyrir stofnunina til að marka nýja stefnu sem tryggir fullar heimtur fyrir lánadrottna.
Megin atriði tillögunar eru sem hér segir:
· Engar greiðslur vaxta eða afborgana fyrr en 1. maí, 2011
· Yfirstandandi fjárfestingaverkefni verða stöðvuð og engin ný verkefni sett í gang
· Skilmálabreytingar allra skuldabréfa, lánasamninga og útistandandi víxla þar sem gjaldföllnum greiðslum vaxta og afborgana ásamt dráttarvöxtum til 18. nóvember er bætt við höfuðstól
· Nauðsynlegt er að allir kröfuhafar samþykki tillöguna formlega
· Reykjaneshöfn skuldbindur sig til að halda kröfuhöfum upplýstum um framvindu sinna mála
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
10:00 Fundarsetning
10:15 Kynning á fjármálum; staðan og væntingar
10:45 Tillaga til lánveitenda; kynning
11:00 Umræður
11:30 Ferlið framundan
11:45 Fundarslit
Reykjaneshöfn hefur ráðið Capacent Fjárfestingaráðgjöf (CF) sem ráðgjafa sinn í þessu ferli. CF er fjármálafyrirtæki sem starfar samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.
------------------------------------------------------------------------------------------------
22 október 2010
AFKOMUVIÐVÖRUN
Reykjaneshöfn hefur ekki tekist að standa við fjárhagslegar skuldbindingar á þessu ári allt frá 1. Maí 2010. Um er að ræða skráða verðbréfaflokka RNH 04 1, RNH 05 1 og RNH 08 1, auk annarra lána og skuldabréfa sem ekki eru skráð á markaði. Um er að ræða samtals 219 milljónir króna. Einnig er fyrirséð að stofnunin muni ekki getað staðið skil á greiðslum þann 1. nóvember næstkomandi af skráðum skuldabréfaflokki RNH 08 1 samtals að fjárhæð 145 milljónir króna.
Þá hefur Reykjaneshöfn samið um lán frá Lánasjóð sveitarfélaga að fjárhæð 48 milljónir króna. Lánið er til 14 ára og er tekið til að endurfjármagna afborganir á lánum hafnarinnar í nóvember 2010 hjá Lánasjóðnum. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Reykjaneshöfn hefur ráðið fjármálaráðgjafa sér til liðsinnis og stefnt er að því að boða til fundar með lánardrottnum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnasviðs
Reykjanesbæjar í síma 420-3222.
----------------------------------------------------------------------------------------------
15. september 2010
Greiðsluerfiðleikar Reykjaneshafnar.
Reykjaneshöfn er í vanskilum með gjalddaga 1. maí sl. vegna greiðslu afb. og vaxta af skuldabréfaflokki nr. RNH08.
Reykjaneshöfn hefur með aðstoð Reykjanesbæjar staðið í endurfjármögnun á langtímalánum Reykjaneshafnar, en lánaútboð Reykjanesbæjar hefur enn ekki borið árangur. Tafir við uppbyggingu álvers Norðuráls í Helguvík og fleiri verkefna til atvinnuuppbyggingar í Reykjanesbæ hafa átt sinn þátt í að lánaútboðið bar ekki árangur, og að lokum neikvæður fréttaflutningur af málefnum Reykjanesbæjar.
Reykjaneshöfn átti einnig von á tekjum vegna lóðagjalda í Helguvík, sem hafa enn ekki komið, en eru væntanlegar á næstu vikum. Þær eru vegna Íslenska kísilversins ehf., Norðuráls ofl. Einnig hafa óskir Reykjaneshafnar um ríkisstyrk við hafnarframkvæmdir í Helguvík ekki borið árangur.
En búið er að greiða hluta vanskilanna og semja um fullnaðar uppgjör innan tveggja mánaða.
| 
|