LÍFALKÓHÓL OG GÝKÓLVERKSMIÐJA
Atlantic Green Chemicals
Við Helguvíkurhöfn
MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM
TILLAGA AÐ MATSÁÆTLUN
(smella hér til að sækja áætlun)
"AGC ehf.(Atlantic Green Chemicals) ásamt nokkrum erlendum samstarfsaðilum
áformar reisingu verksmiðju til framleiðslu umhverfisvænna og grænna efnavara úr
endurnýjanlegum hráefnum frá landbúnaði. Hráefnin sem notuð verða eiga uppruna
sinn í lífdísiliðnaði(glýseról) en hér verður þeim umbreytt í sérstöku
einkaleyfisvernduðu vinnsluferli. Helstu afurðir verksmiðjunnar verða m.a.
lífalkóhól(blanda nokkurra alkóhóla) en þó aðallega glýkól, frostlögur og skyld efni.
Hráefni verða flutt inn í tankskipum og helstu afurðir, sem eru fljótandi, að mestu
leyti einnig. Greinargerð þessi lýsir helstu þáttum og meginatriðum fyrirhugaðrar
framkvæmdar og rekstrar.
Framleiðsluaðferin sem notuð verður byggir á samtvinnun nokkurra aðskildra
framleiðslueininga, t.a.m vetnisframleiðslu, efnaumbreytingu í lokuðum
hvarfakútum, upphitun, uppgufun, eimingu, geymslu hrávöru og afurða í geymum
og fl.. Framkvæmdin telst því falla undir skilgreiningar í lið 7.i. í fyrsta viðauka
laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum(efnaverksmiðja sem framleiðir lífræn
hráefni(afurðir)).
Tillaga að matsáætlun lýsir framkvæmd við byggingu verksmiðju og skýrir að auki
vinnslu- og framleiðsluferli áformaðs verkefnis. Áformað er að fyrsti áfangi
verksmiðjunnar skili um 100 tonnum af afurðum á dag(30.000 tonnum á ári) en eftir
stækkun í endanlega stærð, í tveimur viðbótaráföngum, um fjórum sinnum meira
magni eða um 400 tonnum á dag(120.000 á ári). Áformuð staðsetning
verksmiðjunnar er við Helguvíkurhöfn, á deiliskipulögðu iðnaðarsvæði og
lóð sem Reykjanesbær hefur veitt vilyrði fyrir vegna fyrirhugaðrar starfsemi.
Gert er ráð fyrir að nýta afgangsvarma frá Íslenska kísilfélaginu hf (ISC) til þess að
knýja ýmis varmafræðileg verkefni eins og upphitun, uppgufun og eimingu. Þessi
varmi er aukaafurð og kemur því í stað brennslu jarðefnaeldsneytis (olíu, gass) sem
annars þyrfti að eiga sér stað ef verksmiðjan yrði staðsett erlendis. Auk gufunnar
notar verksmiðjan vetni sem meiningin er að framleiða með rafgreiningu.
Samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum fellur
framleiðslan undir 1. viðauka laganna, lið 7 i.(efnaverksmiðja sem framleiðir lífræn
hráefni(afurðir).
Framkvæmdaraðili verkefnisins er AGC ehf. Um verður að ræða byggingu
starfsmannaaðstöðu, iðnaðarskála, afurðageyma, stálvirkja og turna, á þegar
skipulögðu iðnaðarsvæði við Helguvík, Reykjanesbæ. Sveitarfélagið hefur unnið
deiliskipulag fyrir svæðið. Um er að ræða nýjan rekstur sem ekki hefur verið
starfræktur á Íslandi áður. Starfsemin felur hvorki í sér losun á koldíoxíði né á öðrum gróðurhúsalofttegundum."
(texti þessi er tekinn út inngangi greinagerðainnar).